Borgar_bordinn_sig Logo_small

Hjálp: Hvernig virkar Smelltu?

Í hnotskurn: Taktu óvissuna úr auglýsingum

Smelltu! mælir hve oft auglýsing birtist á vefsíðu og hversu oft er smellt á hana. Með Smelltu! getur þú því:

  • fylgst með hve oft auglýsing þín birtist á tilteknum vefmiðli
  • fylgst með hve margir smella á vefauglýsingu þína
  • borið saman árangur mismunandi auglýsinga sem þú ert með í umferð
  • borið saman árangur mismunandi vefmiðla sem þú auglýsir hjá
  • vaktað hversu vel auglýsingin þín virkar
  • brugðist við þegar draga fer úr áhrifamætti auglýsingar

Sem sé: Smelltu! gerir þér kleift að fylgjast náið með annars vegar gæðum auglýsingaborða þinna og hins vegar gæðum þeirra vefmiðla sem þú auglýsir hjá. Taktu óvissuna úr auglýsingum! Notaðu Smelltu!

Gæði borða: Smellhlutfall

Mæling á gæði borða er gerð með því að telja hve oft er smellt á hann miðað við hve oft hann birtist á auglýsingamiðli. Þetta er svokallað smellhlutfall (e. clickthrough rate) og er þetta hlutfall ein leið til að skilgreina árangur vefauglýsingar.

Dæmið hér að neðan sýnir hvernig Smelltu! gefur notanda yfirlit yfir hvaða borðar fá flesta smelli miðað við birtingar. (Eftirfarandi línurit eru byggð á raunverulegum niðurstöðum úr auglýsingaherferð sem náði yfir þrjá mismunandi íslenska vefmiðla).

Overview_example

Grafið sýnir þróun smellhlutfalls þriggja borða. Græni borðinn er með lægst smellhlutfall. Til að bregðast við lágu smellhlutfalli mætti til að mynda breyta auglýsingunni sem birtist á þeim tiltekna vef.

Lágt smellhlutfall græna borðans þarf þó ekki endilega að þýða að sá borði sé óhagkvæmastur fjárhagslega.

Hagkvæmni borða: Smellkostnaður

Önnur leið til að mæla árangur vefborða er að skoða hagkvæmni hans með því að reikna hvað hver smellur kostar miðað við heildarverð auglýsingar. Er í því sambandi talað um svokallaðan smellkostnað. Dæmið hér að neðan sýnir sömu borða og myndin að ofan. Hér sést að þótt græni borðinn á vefmiðli 2 sé með lægsta smellhlutfallið er hann einnig mun ódýrari per smell en hinir.
Smellkostnadur_screenshot

Fleiri möguleikar

Banner_details_example

Ásamt yfirlitsmyndunum hér að ofan er hægt að skoða hvern borða fyrir sig ofan í kjölinn. Smelltu! sýnir í smáatriðum hvernig smellir, biringar, smellhlutfall, smell- og birtingarkostnaður hafa þróast með tíma, bæði fyrir valin tímabil og frá því að hann byrjaði að birtast á þeim vef sem auglýsir hann.

Tæknilega hliðin

Í flash borða sem á að birtast sem auglýsing á vefmiðil á borð við mbl.is eða visi.is er sett viðbót frá Smelltu sem gerir það að verkum að við getum mælt hvar og hversu oft borðar birtast og hversu oft er smellt á þá.